Lífstíll | 28.4.2011 | 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aðalþjófur þjóðarinnar er ekki nefndur einu orði þegar talað er um í fréttum að verið sé að stela myndlist annarra höfunda eins og gert er í frétt á visir.is í dag.
Ætli sá sem ég hef í huga sé of frægur til að vera nefndur á nafn og sleppi þess vegna undan umræðunni um að hann sé einn aðal steliþjófur landsmanna þegar myndlist er annars vegar?
Hvort sem hann er kallaður Erró eða Ferró þá hefur hann hermt eftir annarra manna myndverkum í áratugi. Skeitt þeim saman á ýmsa vegu og eingöngu fengið hrós fyrir.
Ætli Knútur Bruun sé búinn að gleyma honum eða á bara að ráðast á litlu karlana?
Menning og listir | 22.4.2011 | 21:24 (breytt kl. 21:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Kjósum; Já, takk fyrir, ég vil endilega fá að borga skuldir óreiðumanna. Þó það nú væri, að maður gerði löndum sínum í London og Tortola ekki smá greiða þegar þeir eru á kúpunni, þessar elskur eiga það nú virkilega skilið að það sé hugsað hlýlega til þeirra og hætt að leggja þá í einelti eins og Steingrímur ætlar að gera.
Eru þessar elskur ekki búnar að vinna fyrir öllum milljörðunum? Er einhver að efast um það? Þeir tóku að sé gífurlegar ábyrgðarstöður, komu fram fyrir alþjóð með alla sína speki og fjármálavit og forðuðu sér svo þegar við fórum að bögga þá.
Það er ekki hægt að neita því að við DÁÐUMST AÐ ÞEIM í byrjun. Mikið voðalega erum við fljót að skipta um skoðun BARA vegna þess að þeir fóru úr landi, að vísu með nokkra millutugi líka en hvað með það? Við erum í svo góðum málum, eigum heita vatnið, fiskinn í sjónum, Jón Gnarr og Jóhönnu, bjargvættina sem ættu að komast í skjaldarmerkið. Okkur er sem sé borgið þó við borgum smá Icesave.
Já, hættum að bögga litlu sætu strákana okkar í London, þeir koma aldrei aftur heim ef við hættum ekki.
Dægurmál | 9.4.2011 | 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þar mætti hún 45 mínútum seinna en hún hafði lofað og yfir 300 manns biðu eftir henni því fólk gerði ráð fyrir að hún gæti skýrt hvað ætti að sameina í skólakerfinu og hvernig.
Oddný gat lítið sagt annað en að hún vildi samvinnu og hugmyndir frá skólastjórnendum sem hún var búin að tilkynna að ætti að reka úr vinnu.
Svo fullyrti hún á þessum fundi, sem ég sat í byrjun febrúar, að borgarstjórnarfólk sem situr í nefndum á vegum borgarinnar fengju ekki laun fyrir það.........
Nei, þeir fá bara strípaðan dagvinnu taxtann, sagði hún án þess að nokkurt sannleikskorn hafi verið í þeirri fullyrðingu og hún roðnaði ekki einu sinni þegar hún bauð fundarmönnum uppá þessa þvælu.
Staðreyndin er sú að borgarstjórnar fólk situr oft í nokkrum nefndum og fær borgað fyrir þær og í sumum tilvikum án þess að þurfa að mæta á nefndarfundi.
|
Gengu út þegar Oddný kom í ræðustól |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | 9.3.2011 | 20:50 (breytt kl. 20:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Var að lesa fréttir á Pressunni af Ólafi Skúlasyni fyrrum biskup. Þar segir vitni meðal annars að Ólafur hafi legið lausgirtur ofan á ungri fáklæddri grátandi konu þegar organistinn kom að. Ólafur hafi brugðist hinn versti við, enda skaphundur og ásakað organistann fyrir að koma óvænt inn.....
Svo fór Ólafur í kerfi þegar upp komst um hann og fjöldi kvenna ásakaði hann um kynferðislega misbeitingu. Neitaði auðvitað öllu enda Guðsmaður.. en þegar hann svissaði yfir í góðmennskuna hafi hann virst vera að leika.
Þó ásakanir á hendur Ólafi séu gamlar þá má ekki gleyma að svona getur illa innrætt fólk falið sig á bakvið stöður eins og í kirkjustarfi. Þar sem flestir álíta að vel valin góðmenni séu starfandi.
Á þeim tíma sem mál Ólafs voru mest í fréttum lýstu prestar víðsvegar um land stuðningi við hann og þá skráði ég mig úr þjóðkirkjunni og hef ekki komið nálægt þeirri hræsni síðan.
Nú síðustu árin hafa fleiri sagt frá kynferðislegri misnotkun Ólafs Skúlasonar og það er ekki hægt að líta framhjá því sem þetta fólk hefur sagt. Það eru ekki allir að ljúga, fólki dettur yfirleitt ekki í hug að ljúga svona hlutum upp á prest eða biskup.
Af hverju þegir fólk svona lengi ef það er misnotað kynferðislega af prestinum sínum eða verður vitni að því að hann misnotar aðra?
Trúmál | 14.8.2010 | 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Dægurmál | 8.7.2010 | 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ef svo ólíklega vildi til að einhver væri farinn að sakna þess að sjá ekki einhver skrif eftir mig hér á þessu margrómaða MOGGA bloggi þá vildi ég láta vita að ég er á lífi og hef það ágætt.
Það sem hefur tafið mig frá gáfulegum skrifum hér er t.d. karlastúss og prjónaskapur enda er ég komin með bakteríuna....
svona, svona, það er auðvitað prjónabakterían sem er svona skæð.
Dægurmál | 19.2.2010 | 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
LJóska með tvö rauð eyru kom til læknis.
Læknirinn spurði hana hvað hefði gerst og hún svaraði:
"Ég var að strauja skyrtu og síminn hringdi. Í staðinn fyrir að taka upp símann tók ég óvart upp straujárnið og setti það á eyrað."
"Ja, hérna, ... hvað kom svo fyrir hitt eyrað?" hrópaði læknirinn undrandi.
"Hálfvitinn hringdi aftur ... " svaraði ljóskan.
Spaugilegt | 16.1.2010 | 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hér er bent á slysagildru sem þarf að vara sig á og ég hef grun um að þessi mynd komi af stað kuldahrolli hjá karlmönnum.
Svo passið ykkur
Dægurmál | 19.12.2009 | 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Í dag, 18. desember 2009 eru 37 ár síðan móðir mín dó af hjartaslagi í hádegismatarhléinu sínu. Það var henni líkt að nota hvíldartímann til að gera það sem ekki taldist til þeirra verka sem átti að framkvæma í vinnutíma.
Hún varð bara 57 ára, þrem árum yngri en ég er núna.
Í dag 18. desember 2009 eru 23 ár síðan yngsta barnið mitt var skírt á Fæðingardeildinni þó svo ekkert hafi verið að. En í þá daga var það sjaldgæft að skíra börn þar nema eitthvað mikið væri að og barnið í lífshættu. Ég ákvað aftur á móti að skíra guttann þarna til að sleppa við veisluhöld þar sem fjölskyldudrama var í algleymingi.
Ég spyr mig nú; hafði ég einhvern rétt til að skíra son minn í ákveðinn trúarsöfnuð að honum forspurðum?
Lífstíll | 18.12.2009 | 18:02 (breytt kl. 18:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
gudnim
-
boi
-
brandarar
-
coma
-
eask
-
fusinn
-
gudruntora
-
gullilitli
-
svanurg
-
yngvii
-
kolbeinz
-
daggardropinn
-
doritaxi
-
blossom
-
bjornbondi99
-
kaffi
-
arikuld
-
kristbjorn20
-
nonniblogg
-
agny
-
brv
-
berglindnanna
-
gisgis
-
borgarfjardarskotta
-
gleymmerei
-
tudarinn
-
veravakandi
-
haukurn
-
jakobk
-
kristinm
-
mariarichter
-
mal214
-
nanna
-
roslin
-
totally
-
nimbus
-
siggith
-
stormsker
-
olof
-
baldher
-
zeriaph
-
skagstrendingur
-
gattin
-
joiragnars
-
jonvalurjensson
-
joklamus
-
athena
-
thjodarheidur
| Maí 2012 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 162945
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar








