Kennarar eru skiljanlega búnir að fá nóg

Ég er ekki hissa á að kennarar stormi út af fundi þar sem Oddný Sturludóttir kemur fram. Ég fékk alveg nóg af hennar útfærslum á sannleikanum á þeim eina fundi sem ég fór á þar sem hún kom fram.
Þar mætti hún 45 mínútum seinna en hún hafði lofað og yfir 300 manns biðu eftir henni því fólk gerði ráð fyrir að hún gæti skýrt hvað ætti að sameina í skólakerfinu og hvernig.
Oddný gat lítið sagt annað en að hún vildi samvinnu og hugmyndir frá skólastjórnendum sem hún var búin að tilkynna að ætti að reka úr vinnu.
Svo fullyrti hún á þessum fundi, sem ég sat í byrjun febrúar, að borgarstjórnarfólk sem situr í nefndum á vegum borgarinnar fengju ekki laun fyrir það.........
Nei, þeir fá bara strípaðan dagvinnu taxtann, sagði hún án þess að nokkurt sannleikskorn hafi verið í þeirri fullyrðingu og hún roðnaði ekki einu sinni þegar hún bauð fundarmönnum uppá þessa þvælu.
Staðreyndin er sú að borgarstjórnar fólk situr oft í nokkrum nefndum og fær borgað fyrir þær og í sumum tilvikum án þess að þurfa að mæta á nefndarfundi.
mbl.is Gengu út þegar Oddný kom í ræðustól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband